Beint í efni

Íslenskt verslunarkerfi. Við opnum verslanir eftir boði.

Þú selur. Við tökum0%

Netverslun, stjórnborð og gervigreindin Stýra í einu kerfi sem er byggt fyrir Ísland. Fast mánaðarverð í krónum og engin þóknun af sölunni.

Um 130.000 kr. minna á ári en Shopify við 1.500.000 kr. sölu á mánuði. Sjá dæmið

Takk! Þú ert á listanum. Við sendum þér boð í tölvupósti þegar röðin kemur að þér.

Þú smíðar verslunina frítt og borgar fyrst þegar þú opnar. Ekkert kort og engin skuldbinding.

KAUPLYKvittun fyrir netverslun

Verslun og stjórnborð
innifalið
Eigið lén og SSL
innifalið
Greining án vafrakakna
innifalið
Umsagnir og gjafakort
innifalið
VSK, kennitala, Dropp
innifalið
Þóknun af sölu
0%

Á mánuði frá
5.750 kr.

Án VSK, í ársáskriftStofnkjör: fyrstu 50

Viltu strimilinn?
kauply.is
0%
þóknun af sölu, á öllum leiðum
5.750 kr.
á mánuði fyrir Byrjun í ársáskrift, án VSK
130.000 kr.
minna á ári en Shopify við 1.500.000 kr. sölu á mánuði. Reiknaðu þitt dæmi
0 kr.
fyrir að smíða verslunina. Þú borgar fyrst þegar þú opnar

Reiknaðu dæmið.

Dragðu sleðann að þinni mánaðarsölu. Við berum ódýrustu Shopify-áskriftina fyrir þá sölu saman við þá Kauply-leið sem á við: Byrjun upp að 10 m.kr. á ári, annars Vöxt.

1.500.000 kr.

Þú sparar um 130.000 kr. á ári með Kauply.

Hér munar litlu: innan við 10.000 kr. á ári á Shopify og Kauply.

Shopify er ódýrara hér. Við þessa sölu kostar það 0 kr. minna á mánuði en Kauply.

Shopify (Grow) kostar 27.847 kr. á mánuði og Kauply (Vöxtur) 16.900 kr. á mánuði.

Færslugjald færsluhirðis, t.d. Rapyd, greiðist í báðum kerfum og er ekki talið með. Ef þú selur fyrir minna en um 1.280.000 kr. á ári, án viðbóta, er Shopify Basic ódýrara en Byrjun. Verð Shopify eru umreiknuð á genginu 122,35 kr./USD frá 10.11.2026.

Ég vil fá boð
Sjá útreikninginn
SHOPIFYá mánuði, án VSK

Áskrift (Grow)
12.847 kr.
Færslugjald, 1%
15.000 kr.
POS Lite, innifalið
0 kr.

Samtals
27.847 kr.
KAUPLYá mánuði, án VSK

Vöxtur
16.900 kr.
Afgreiðslukassi
0 kr.
Heildsala (B2B)
0 kr.
Þóknun af sölu
0 kr.

Samtals
16.900 kr.

Verð Shopify eru úr opinberri verðskrá þess (shopify.com/pricing), sótt 11.11.2026: mánaðargreiðsla, Basic 39, Grow 105 og Advanced 399 USD á mánuði, og færslugjald 2%, 1% og 0,6% þegar Shopify Payments er ekki notað. Shopify Payments er ekki í boði á Íslandi. Afgreiðslukassinn er borinn saman við POS Lite, sem fylgir áskriftum Shopify og bætir því engu við Shopify-hliðina; POS Pro (89 USD á stað á mánuði) er ekki talið með. Heildsala bætir heldur engu við Shopify-hliðina. Umreiknað á genginu 122,35 kr./USD, miðgengi Seðlabankans 10.11.2026. Engar viðbætur eru taldar með og mánaðaráskrift er borin saman við mánaðaráskrift. Byrjun er fyrir netsölu allt að 10 m.kr. á ári án VSK. Öll verð eru án VSK og geta breyst. Sparnaðurinn er námundaður niður að næstu 10.000 kr.

Allt á einum strimli.

Þetta er ekki selt sem öpp: það fylgir áskriftinni. B2B-aðgangar og afgreiðslukerfi fylgja Fyrirtæki og eru annars viðbætur í verðskránni.

Skoða alla eiginleika
KAUPLYFylgir áskriftinni

Umsagnir með myndum
innifalið
Gjafakort
innifalið
Yfirgefnar körfur
innifalið
Vöruvakt („Láta vita“)
innifalið
Óskalisti
innifalið
Afslættir og útsölur
innifalið
Vörupakkar
innifalið
„Kauptu X, fáðu Y“
innifalið
Póstlistasöfnun
innifalið
Greining án vafrakakna
innifalið
Meta Conversions API
innifalið
Herferðir með arðsemi
innifalið
Blogg og síðusmiður
innifalið
Stafrænar vörur
innifalið
Fleiri gjaldmiðlar
frá Vexti
Heimilisfangaleit
innifalið
Yfir 20 útlit
innifalið
B2B-aðgangar
viðbót
Afgreiðslukerfi (POS)
viðbót

Öpp frá þriðja aðila
0 kr.
kauply.is

Búð með þínum svip.

Yfir 20 útlit, fyrir fatnað, mat, handverk, heimili og fleira. Í stjórnborðinu forskoðar þú þína eigin verslun í nýju útliti áður en þú skiptir, og enginn annar sér forskoðunina.

Hvað selur þú?
Forsíða sýniverslunarinnar REYK Apparel í tölvu Forsíða sýniverslunarinnar REYK Apparel í síma
Sýniverslunin REYK Apparel, útlit Poster. Allt efni er skáldað sýnidæmi.Opna sýniverslunina
Forsíða sýniverslunarinnar Íslandsmatur í tölvu Forsíða sýniverslunarinnar Íslandsmatur í síma
Sýniverslunin Íslandsmatur, útlit Larder. Allt efni er skáldað sýnidæmi.Opna sýniverslunina
Forsíða sýniverslunarinnar Smiðjan í tölvu Forsíða sýniverslunarinnar Smiðjan í síma
Sýniverslunin Smiðjan, útlit Bench. Allt efni er skáldað sýnidæmi.Opna sýniverslunina
Forsíða sýniverslunarinnar Heimilið í tölvu Forsíða sýniverslunarinnar Heimilið í síma
Sýniverslunin Heimilið, útlit Hygge. Allt efni er skáldað sýnidæmi.Opna sýniverslunina

Á bak við búðarborðið

Stjórnborðið í þremur skjámyndum
Pantanalisti í stjórnborði Kauply: pöntunarnúmer, dagsetning, viðskiptavinur, upphæð og staða hverrar pöntunar
Ein pöntun í stjórnborði Kauply: vörur, samtala og tímalína frá greiðslu til afhendingar
Vörulisti í stjórnborði Kauply: mynd, flokkur, verð, birgðir og staða hverrar vöru

Skjámyndirnar eru úr stjórnborði sýniverslunarinnar REYK Apparel, með prófunargreiðslum. Allt efni er skáldað sýnidæmi.

Stýra — gervigreindin sem stýrir með þér

Hún fylgist með búðinni allan sólarhringinn og segir þér hvað skiptir máli í dag: vörur sem vantar lýsingu, eftirspurn sem þú missir af, birgðir að klárast.

  • Spjöldin fylgja öllum leiðum og virka frá fyrsta degi, án uppsetningar.
  • Það sem Stýra skrifar og metur greiðist eftir notkun. Þú sérð kostnaðinn í krónum og mánaðarlegt hámark er á hverri verslun.
  • Hún byggir á raunverulegum tölum búðarinnar og býr aldrei til tölur.
  • Að klárast

    Dúnjakki 01 — Sandur. 4 á lager · 10 seldust á 30 dögum · um 12 dagar eftir

  • Leitir án niðurstaðna

    Leitað var að „regnjakki“ 37 sinnum. Þetta er eftirspurn sem verslunin þín mætir ekki enn.

  • Þú tapar á þessum

    Húfa — Ryð. Selst á 4.900 kr. · kostar þig 5.200 kr. · 300 kr. tap á einingu · 6 seldust nýlega

  • Selst ekki lengur

    Taska — Crossbody tækniefni. 50 á lager · seldist síðast fyrir 74 dögum

  • Selst vel núna

    Hettupeysa 02 — Mold. 13 seldust á 30 dögum · 37 á lager · í sókn

  • Vert að ná aftur

    Þórdís E. 6 pantanir · 84.300 kr. · keypti síðast fyrir 112 dögum

Mat Stýrukveikt á að þinni ósk

Byrjaðu á dúnjakkanum: hann klárast eftir um 12 daga og selst hratt. Hækkaðu svo verðið á húfunni, hún selst undir kostnaðarverði.

Dagbók Lýsingar skrifaðar fyrir 6 vörur. 8 vörur vantaði lýsingu, 2 vantar enn.

Spjöldin eru byggð á stjórnborðinu. Tölurnar eru skáldað sýnidæmi úr sýniversluninni REYK Apparel.

Byggt fyrir Ísland.

REYK APPARELPöntun 1042

Dúnjakki 01 Sandur, M
32.900 kr.
Húfa Ryð
4.900 kr.
Sending með Dropp
790 kr.

Samtals
38.590 kr.
Þar af VSK 24%
7.469 kr.
Kennitala
falin
Greitt með korti kl. 14:32

Skáldað sýnidæmi úr sýniversluninni REYK Apparel

  • VSK og kennitala

    Í loftinu

    24% og 11%, verð með VSK og línan „Þar af VSK“ á hverri pöntun. VSK-skýrsla sem þú sækir sem CSV fyrir bókarann. Kennitala í greiðsluferlinu, á pöntunum og á reikningum til fyrirtækja.

  • Dropp

    Í loftinu

    Kaupandinn velur afhendingarstað í greiðsluferlinu. Þegar Dropp er tengt er sjálfvirk bókun og rakningarnúmer á hverri sendingu.

  • Pósturinn

    Í loftinu

    Sendingarleið með verðskrá Póstsins. Rakningarnúmerið skráir þú þegar þú sendir.

  • Krónur

    Í loftinu

    Heilar krónur, engir aurar. Gengi frá Seðlabankanum ef þú selur líka í öðrum gjaldmiðlum.

  • Kortagreiðslur

    Í loftinu

    Kortagreiðslur í gegnum Rapyd eru tilbúnar: þú tengir aðganginn í stjórnborðinu, prófar í prófunarham og skiptir í raunham þegar allt virkar. Endurgreiðslur fara aftur á kortið sem greitt var með.

  • Fleiri greiðsluleiðir

    Væntanlegt

    Teya, Netgíró og Síminn Pay eru væntanleg; engin tenging við þau er komin enn.

Hratt. Og þitt.

Létt síða, snögg búð

Kauply sendir kaupandanum tilbúna síðu í stað þess að láta símann setja hana saman. Þess vegna er búðin snögg, líka á gömlum síma og slöku neti. Þessi síða er send á sama hátt, og hér er kvittunin fyrir henni.

KAUPLYÞessi síða, fyrsta hleðsla

Síðan sjálf
24 KB
Leturgerðir, 2 skrár
84 KB
Forrit, 1 skrá
14 KB
Myndir efst á síðu
0
Efni frá þriðja aðila
0

Samtals, þjappað
122 KB

Gögnin eru þín

Eigin gagnagrunnur
Hver verslun á sinn eigin gagnagrunn og viðkvæm gögn eru dulkóðuð með lykli verslunarinnar. Þín gögn eru ekki í sömu töflu og annarra.
Afrit
Samfelld afrit, með endurheimt sem er prófuð.
Engin læsing
Pantanir, viðskiptavini og söluskýrslur flytur þú út sem CSV hvenær sem er.
Greining án rakningar
Innbyggða vefgreiningin sýnir hvað hver rás skilar í krónum, notar engar vafrakökur og sendir ekkert til Google eða annarra.

Innskráning án lykilorðs, hlutverk fyrir starfsfólk og skrá yfir hver gerði hvað.

Við byggðum Kauply af því að íslenskar verslanir áttu skilið verkfæri sem er byggt fyrir íslenskan rekstur og verðlagt í krónum.

Kauply-teymið, Reykjavík

Kauply er nýtt. Við sýnum engar umsagnir fyrr en verslanir hafa gefið þær.

Verð sem þú getur reiknað með.

Fast mánaðar­verð í krónum. Við tökum ekki hlut af sölunni þinni. Engin uppsetningargjöld og engin binding í mánaðaráskrift.

Stofnverslanir: fyrstu 50 verslanirnar fá verðið fest til ársloka 2029 og beina línu til stofnandans. Á Vexti og stærri leiðum fylgir flutningurinn án endurgjalds.

Greiðslutímabil
Veldu leið til að skoða

Byrjun

Fyrir nýjar og litlar verslanir: netsala allt að 10 m.kr. á ári án VSK.

6.900 kr. á mánuði, án VSK

5.750 kr. á mánuði í ársáskrift, án VSK

  • Öll verslunin: vörur, pantanir, birgðir og greining
  • Öll frí útlit og síðusmiður
  • 2 notendur
  • Gervigreind: greitt eftir notkun
  • Aðstoð í tölvupósti, svar innan 2 virkra daga

Eða 69.000 kr. á ári: 2 mánuðir fríir.

Greitt árlega: 69.000 kr. á ári. Í mánaðaráskrift 6.900 kr. á mánuði.

Við mælum með

Vöxtur

Fyrir verslanir í fullum rekstri: engin veltumörk.

16.900 kr. á mánuði, án VSK

14.083 kr. á mánuði í ársáskrift, án VSK

  • Allt í Byrjun, án veltumarka
  • 5 notendur
  • Premium-útlit og fleiri gjaldmiðlar
  • Daglegt mat Stýru á búðinni innifalið
  • Svar næsta virka dag

Eða 169.000 kr. á ári: 2 mánuðir fríir.

Greitt árlega: 169.000 kr. á ári. Í mánaðaráskrift 16.900 kr. á mánuði.

Fyrirtæki

Fyrir verslanir með búð, heildsölu eða teymi.

42.900 kr. á mánuði, án VSK

35.750 kr. á mánuði í ársáskrift, án VSK

  • Allt í Vexti
  • 15 notendur
  • 1 afgreiðslukassi innifalinn
  • Heildsala (B2B) innifalin
  • Svar samdægurs á virkum dögum

Eða 429.000 kr. á ári: 2 mánuðir fríir.

Greitt árlega: 429.000 kr. á ári. Í mánaðaráskrift 42.900 kr. á mánuði.

  • Stórrekstur 99.900 kr.83.250 kr. á mánuði: 3 afgreiðslukassar, 50 notendur, símaþjónusta alla daga og fastur tengiliður.
  • Sérsamningur frá 179.000 kr. á mánuði: eigin netþjónn og skriflegur þjónustusamningur.
Ég vil fá boð

Þú smíðar verslunina frítt og borgar fyrst þegar þú opnar.

KAUPLYViðbætur, án VSK

Á mánuði

Afgreiðslukassi
5.900 kr.
Heildsala (B2B)
7.900 kr.
Aukanotandi
1.490 kr.

Greitt einu sinni

Flutningsaðstoð, frá
59.000 kr.
Sérsniðið útlit, frá
79.000 kr.

Verðloforð: fyrstu 36 mánuði verslunar hækkar áskriftarverðið í mesta lagi einu sinni á ári, ekki umfram vísitölu neysluverðs og með 90 daga fyrirvara.

Skiptir þú úr öðru kerfi á Vöxt eða stærri leið er fyrsti mánuðurinn frír.

Allar leiðir: 0% af sölu · ótakmarkaðar vörur og pantanir · eigið lén og SSL · sjálfvirk afrit · GDPR-verkfæri · uppsögn mánaðaráskriftar hvenær sem er.

Verð eru án VSK. Byrjun kostar 8.556 kr. á mánuði með VSK (7.130 kr. í ársáskrift).

Gervigreind er greidd eftir notkun. Hver verslun fær 1.000 kr. inneign til að prófa og mánaðarlegt hámark er á hverri verslun. Væntanlegt: inneign sem þú kaupir fyrir fram, frá 1.490 kr., og hámark sem þú ákveður. Búðin sjálf heldur áfram þótt gervigreindin geri hlé.

Afgreiðslukassi kostar aðeins þá mánuði sem þú notar hann. Heildsala er viðbót á Vexti og innifalin í Fyrirtæki. Flutningsaðstoð kostar frá 59.000 kr. eftir stærð vörulistans og er án endurgjalds í ársáskrift á Vexti og Fyrirtæki. Þú átt hönnunina þegar hún er greidd.

Vörulistinn flyst í einni skrá. Við hjálpum með restina.

  1. Flyttu út úr Shopify

    Sæktu vörulistann þinn sem CSV-skrá í Shopify.

  2. Hladdu upp í Kauply

    Vörur, afbrigði, verð, fyrra verð, strikamerki, vörumerki og birgðir koma með, og þú sérð framvindu og villur línu fyrir línu.

  3. Farðu yfir og opnaðu

    Myndir, flokkar, viðskiptavinir og pantanasaga fylgja ekki með í innflutningnum enn. Með flutningsaðstoð sjáum við um myndir og flokka fyrir þig, og Stýra skrifar lýsingar, SEO og alt-texta þar sem vantar.

Gamla búðin er opin á meðan. Nýja búðin fær strax eigið veffang hjá Kauply, þú setur hana upp í ró og næði og tengir lénið þitt þegar allt er tilbúið.

Spurt og svarað.

Hvað gerist eftir að ég skrái mig?

Þú ferð á biðlistann og færð staðfestingu í tölvupósti. Þegar röðin kemur að þér sendum við þér boð sem opnar uppsetninguna: þú lýsir búðinni, velur útlit og byrjar að setja inn vörur.

Hvað kostar að byrja?

Ekkert. Þú smíðar verslunina frítt og borgar fyrst þegar þú opnar hana; ekkert kort þarf til að skrá sig. Verslun sem er ekki opnuð innan 90 daga er sett í geymslu, með 30 daga fyrirvara. Fyrstu 50 verslanirnar eru stofnverslanir: verðið er fest til ársloka 2029, þú færð beina línu til stofnandans og á Vexti og stærri leiðum fylgir flutningurinn án endurgjalds. Stofnkjörin gilda til 30.6.2027 eða þar til 50 verslanir hafa samið við okkur. Á móti biðjum við stofnverslanir að opna innan 60 daga frá samningi, sýna okkur þrjá síðustu reikninga frá fyrra kerfi ef þær skipta úr öðru, taka hálftíma spjall við okkur á ársfjórðungi og leyfa okkur að segja frá kostnaðinum fyrir og eftir.

Hækkar verðið þegar ég sel meira?

Nei. Kauply tekur ekki hlutfall af sölu á neinni leið. Eina stærðarviðmiðið er á Byrjun, sem er fyrir verslanir með netsölu allt að 10 m.kr. á ári án VSK. Sé netsala síðustu tólf mánaða yfir því tvenn mánaðamót í röð látum við þig vita með 30 daga fyrirvara áður en þú færist á Vöxt, og ekkert er rukkað aftur í tímann. Á Vexti og stærri leiðum fylgir verðið ekki sölunni.

Getur verðið hækkað seinna?

Fyrstu 36 mánuði verslunarinnar hækkar áskriftarverðið í mesta lagi einu sinni á ári, ekki umfram vísitölu neysluverðs og með 90 daga fyrirvara. Eftir það gildir áfram 90 daga fyrirvari og í mesta lagi ein breyting á ári. Stofnverslanir eru undanþegnar hækkunum til ársloka 2029. Mánaðaráskrift segir þú upp hvenær sem er; ársáskrift er greidd fyrir fram fyrir tólf mánuði í senn.

Hvað kostar gervigreindin?

Spjöld Stýru fylgja öllum leiðum. Það sem gervigreindin skrifar og metur er greitt eftir notkun: hver verslun fær 1.000 kr. inneign til að prófa og þú sérð kostnaðinn í krónum. Til viðmiðunar kostar ein vörulýsing nokkrar krónur. Á Vexti og stærri leiðum er daglegt mat Stýru á búðinni innifalið. Mánaðarlegt hámark er á hverri verslun; inneign sem þú kaupir fyrir fram, frá 1.490 kr., og hámark sem þú ákveður eru væntanleg.

Getið þið hannað verslunina fyrir mig?

Já. Sérsniðið útlit, þitt vörumerki á einu af útlitunum okkar, kostar frá 79.000 kr., greitt einu sinni. Sérhönnuð verslun kostar 390.000 kr., eða 34.900 kr. á mánuði í 12 mánuði í ársáskrift (samtals 418.800 kr.). Hönnun, flutningur og efni saman kosta 690.000 kr., eða 31.900 kr. á mánuði í 24 mánuði í ársáskrift (samtals 765.600 kr.). Þú átt hönnunina þegar hún er greidd að fullu.

Get ég flutt verslunina mína úr Shopify?

Vörulistann, já: hann flyst inn úr CSV-útflutningi Shopify með afbrigðum, verði og birgðum. Myndir, flokkar, viðskiptavinir og pantanasaga flytjast ekki sjálfkrafa enn. Með flutningsaðstoð, frá 59.000 kr. eftir stærð vörulistans, flytjum við vörulistann, myndir og flokka fyrir þig og förum yfir búðina með þér fyrir opnun. Hún er án endurgjalds í ársáskrift á Vexti og Fyrirtæki.

Hvað verður um gömlu slóðirnar og stöðuna á Google?

Lénið þitt heldur sér, en slóðir á vörur og flokka eru aðrar í Kauply en í Shopify og sjálfvirk áframsending gamalla slóða er ekki komin enn. Gamlir tenglar á einstakar vörur hætta því að virka við skiptin og leitarvélar þurfa tíma til að lesa nýju síðurnar. Hver verslun fær veftré (sitemap) og SEO-texta fyrir hverja vöru, sem flýtir fyrir.

Hvaða greiðslumátar eru studdir?

Kortagreiðslur í gegnum Rapyd eru tilbúnar: þú tengir Rapyd-aðganginn í stjórnborðinu, prófar í prófunarham og skiptir í raunham þegar allt virkar. Fyrirtæki með greiðslufrest geta greitt með reikningi. Teya, Netgíró og Síminn Pay eru væntanleg; engin tenging við þau er komin enn.

Get ég notað mitt eigið lén?

Já. Þú tengir lénið í stjórnborðinu, Kauply staðfestir DNS-færslurnar og sér um SSL.

Hver á gögnin mín?

Þú. Hver verslun á sinn eigin gagnagrunn, viðkvæm gögn eru dulkóðuð með lykli verslunarinnar og þú flytur pantanir, viðskiptavini og söluskýrslur út sem CSV hvenær sem er. Þú getur hætt þegar þú vilt og tekið gögnin með þér. Nánar í persónuverndarstefnunni.

Hvernig fæ ég aðstoð?

Skrifaðu okkur á hello@kauply.is, á íslensku eða ensku. Svartíminn fer eftir leið: innan tveggja virkra daga á Byrjun, næsta virka dag á Vexti og samdægurs á Fyrirtæki.

Hvað er ekki komið enn?

Teya, Netgíró og Síminn Pay eru væntanleg. Tenging við bókhaldskerfi og tenging við posa eru væntanlegar; hvorug er komin enn. Fréttabréfasendingar eru væntanlegar: í dag safnar þú áskrifendum á póstlista og flytur listann út sem CSV. Viðbótakerfi fyrir forritara er í vinnslu. Stýra leggur til og skrifar í dag; að hún framkvæmi sjálf innan marka sem þú setur er næsta skref. Við segjum frekar frá því sem vantar en að lofa því.

Fannstu ekki svarið? Skrifaðu okkur á hello@kauply.is.

Búðin þín. Krónurnar þínar.

Við opnum verslanir eftir boði. Skráðu netfangið þitt og við sendum þér boð þegar röðin kemur að þér.

Netfangið þitt er komið á listann. Við sendum þér boð þegar röðin kemur að þér.

KAUPLYBoð um að opna verslun

Ekkert kort. Engin skuldbinding. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

Skráð

Takk! Við sendum þér boð þegar röðin kemur að þér. Fylgstu með pósthólfinu.

  1. Þú skráir netfangið.
  2. Við sendum þér boð í tölvupósti.
  3. Þú lýsir búðinni og hún er sett upp fyrir þig.

Frítt að smíða · Þú borgar fyrst þegar þú opnar · Stofnkjör fyrir fyrstu 50 verslanirnar